Heimavistarskólinn er tveggja vikna þjálfunarprógram þar sem hundurinn dvelur á samstarfshundahóteli okkar á Ásbrú og fer í daglega, markvissa þjálfun.
Á þessum tveimur vikum vinnum við í helstu grunnþáttum hlýðni, þar á meðal:
– Lausataumsgöngu (unnið í átt að formlegu hæl)
– Stöðum
– Að vera kyrr
– Innkalli
– Almennri sjálfstjórn og skýrari ramma
Ef hegðunarvandamál eru til staðar er unnið sérstaklega með þau samhliða grunnvinnunni.
Markmiðið er að byggja upp skýra samskiptaramma, betri samvinnu og stöðugri hegðun í daglegu lífi.
Að dvöl lokinni hittumst við í einkatíma þar sem farið er yfir þjálfunina og eigendur fá skýra handleiðslu um hvernig halda á áfram heima. Einnig fylgja tveir auka einkatímar sem hægt er að nýta síðar til að styrkja eftirfylgni og tryggja að árangurinn haldist.
Skriflegar leiðbeiningar fylgja með svo eigendur hafi skýr verkfæri til áframhaldandi vinnu.
Einkatímar hjá Hundatengsl eru skipulagðir sem fimm tíma þjálfunarferli.
Ég sel almennt ekki staka tíma til nýrra viðskiptavina, þar sem raunverulegur og varanlegur árangur næst sjaldnast í einum tíma. Markmiðið er ekki skyndilausn, heldur að byggja upp skýran grunn, betri samskipti og stöðuga framvindu.
Í fimm tíma ferlinu:
– Greinum við stöðuna og skilgreinum skýr markmið
– Setjum upp þjálfunarkerfi sem hentar hundi og eiganda
– Byggjum upp færni skref fyrir skref
– Fylgjum eftir og fínstillum vinnuna
Fyrri viðskiptavinir sem hafa lokið 5 tíma ferli eða Heimavistarskólanum geta bókað staka viðhaldstíma eftir þörfum.
Áherslan er á markvissa vinnu, ábyrgð og árangur til lengri tíma.