Ég heiti Rúnar og hef starfað við hundaþjálfun með ástríðu, ábyrgð og virðingu fyrir bæði hundinum og eigandanum. Ég útskrifaðist sem Master hundaðjálfari frá Tom Rose School for Professional Dog Trainers, alþjóðlega viðurkenndum skóla með sterka verklega nálgun og háar kröfur um fagmennsku, færni og skilning á hegðun hunda. Námið þar er krafist og leggur áherslu á raunverulega færni, ekki aðeins fræði, heldur einnig getu til að lesa aðstæður og bregðast rétt við hverju sinni.
Í minni þjálfun legg ég áherslu á skýr samskipti, sanngirni, og raunhæfar lausnir sem virka í daglegu lífi. Þar sem enginn hundur er eins nálgast ég hvern hund sem einstakling. Markmið mitt er ekki að troða hundinum inn í ákveðið kerfi, heldur að finna leiðir sem henta bæði honum og eigandanum. Þannig byggjum við upp traust, öryggi, og skýran ramma.
Ég fylgi aðferðum og hugmyndafræði þjálfara á borð við Michael Ellis og Nate Schoemer, sem leggja áherslu á tæknilega nákvæmni, tímastillingu, hvatningu og skýra uppbyggingu í þjálfun. Þessar áherslur hafa haft mikil áhrif á mig, sérstaklega þegar kemur að því að byggja upp vinnugleði, sjálfstraust og stöðugleika í hegðun hunda.
Fyrir mér snýst hundaþjálfun ekki aðeins um hlýðni heldur um tengsl. Ég vil að fólk skilji hundinn sinn betur og hafi verkfærin til að halda áfram sjálft. Góð þjálfun á að vera skiljanleg, framkvæmanleg og að styrkja sambandið, ekki bara að laga vandamál.
Ég tek starfið alvarlega, legg mig fram í hverju verkefni og held áfram að læra og þróast. Markmið mitt er einfalt: að styrkja tengsl hunda og fólks og skapa varanlegan árangur sem endist til framtíðar.


